Number of registered Mystery Shoppers

Frábær þjónusta

Margir viðskipavina okkar hvetja og verðlauna sína starfsmenn sem hafa gefið Mystery Shopperum (og öðrum viðskiptavinum) frábæra þjónustu. Þess vegna ákváðum við að vera með lið í okkar rannsókn sem lýsir sérstaklega þeirri þjónustu.

Ef Shopper frá okkur fær frábæra þjónustu skrifa þeir niður lýsingu á þjónustunni og hvað það var sem stóð upp úr. Þessi lýsing getur svo verið prentuð á fallegt skjal og gefið þeim starfsmanni eða teymi sem stóð að þjónustunni. Menn fá ekki framúrskarandi einkunn fyrir það aðeins að gefa góða þjónustu heldur verður hún að vera það frábær að Shopperinn geti ekki haldið upplifun sinni fyrir sjálfan sig og segir fjölskyldu og vinum frá henni.

12% heimsókna okkar leiða til verðlauna fyrir frábæra þjónustu. Við hlökkum til að segja þér hvort þessi þjónusta eigi sér stað í þínu fyrirtæki.

Hvatning

Við höfum sett á laggirnar hvatningarkerfi með vörum sem aðeins eru fáanlegar þeim fyrirtækjum sem hafa unnið til verðlauna fyrir frábæra þjónustu en það eru skjöl, nælur og skartgripir fyrir karlmenn og konur. Hér getur þú séð dæmi um hvatningarvörurnar okkar  


Gasell Vinnare 2008