Number of registered Mystery Shoppers

Sagan

Better Business var stofnað árið 1995 í Svíþjóð undir nafninu Bättre Affärer. Veronica Boxberg Karlsson vann þá ein í fyrirtækinu sem stóð að þjónustuþjálfun, gæðaþróun, markaðsrannsóknum og sölu.

Einblínt á Mystery Shopping síðan 1996

Veronica var ráðin af stórri hótelkeðju til að prófa hótelin þeirra í Svíþjóð. Þegar Veronica hafði gist á öllum þeim 55 hótelum í Svíþjóð vildi keðjan sömu prófanir gerðar á hótelum þeirra í Danmörku, svo Noregi, Finnlandi, Eistlandi, Belgíu og Hollandi. Ekki leið á löngu þar til öll löndin sjö vildu heimsóknir á sama tíma og þá varð Veronica að ráða fólk til að hjálpa sér. Höfuðstöðvar fyrirtækisins voru skrifstofan heima hjá Veronicu og voru fundir haldnir við eldhúsborðið.

Verkefnum fjölgaði og þá sérstaklega í verslunargeiranum og varð það kostnaðarsamt jafnt og tímafrekt að senda Shoppera vítt og breitt um Norðurlöndin. Það leið til rannsóknar á öðrum fyrirtækjum með langa sögu hulduheimsókna til að læra hvernig best væri að haga málunum.  Úr varð að fyrirtækið flutti í núverandi skrifstofur í húsnæði Lindö Golfklupp og hóf þróun að fyrstu útgáfu rafræns skýrsluskerfis. Það kerfi hefur verið í sífelldri þróun síðan og íslenskir Mystery Shopperar nýta sér nýjustu útgáfuna í dag með samstarfsaðilum sínum úti um allan heim.

Better business hefur þróað margar hugmyndir fyrir þjónustufyrirtæki, þar á meðal eru SSQ verðlaunin, Skandinavísku þjónustu- & gæðaverðlaunin sem og verðlaun Better Business fyrir frábæra þjónustu. Veronica er höfundur bókarinnar ,,The book about Mystery Shopping” og átti hún einnig stóran þátt í að skrifa fyrstu bókina um Mystery Shopping fyrir stjórnendur: ,,Measuring Management and the Moment of Truth.  

Áhrif Better Business á þjónustugeirann

Árið 2000 varð Better Business meðlimur MSPA (Mystery Shoppers Providers Organisation) og árið 2001 var MSPA Europe stofnað og var Veronica forseti samtakanna fyrstu þrjú árin. Árið 2003 var IMSA (Interntational Mystery Shoppers Alliance) stofnað með yfir hálfa milljón Mystery Shoppera á heimsvísu. Árið 2005 fékk Veronica heiðursverðlaun MSPA og síðan 2006 hefur hún setið í alþjóðastjórn félagsins.

2009

16 manns starfa í höfuðstöðvum Better Business í Vallentuna og eru Mystery Shopperar fyrirtækisins rúmlega 49.000. Better Business hefur stjórnað verkefnum í yfir 50 löndum í mismunandi geirum fyrir utan smásölu og hótelþjónustu sem var kjarnaverkefni Veronicu til að byrja með.  Núna störfum við fyrir veitingastaði, ferðaskrifstofur, flugfélög, kvikmyndahús, bensínstöðvar, tímarit, bílasölur, banka og fyrirtæki í byggingariðnaðinum svo eitthvað sé nefnt.

Better Business er sænskt fyrirtæki í eigu Veronicu Boxberg Karlsson. Bjarni Ásgeirsson er sérleyfishafi Better Business og eigandi Better Business World Wide á Íslandi. Við eigum í góðu samstarfi við sænska fyrirtækið varðandi verkefni á erlendri grund.


Gasell Vinnare 2008