Til að prófa reglulega hvort áfengis- og tóbakslöggjöf sé framfylgt í heildsölum, vínbúðum og á tóbakssölustöðum þarf að ganga úr skugga um það að unglingum sé í raun bannað að kaupa áfengi og tóbak. Tóbaks- og áfengislögin segja að sá sem selur tóbak þarf að fullvissa sig um að kaupandi hafi náð átján ára aldri og að sá sem kaupir áfengi hafi náð 20 ára aldri.
Better Business hefur áralanga reynslu í aldursprófunum og er í góðu samstarfi við tóbaks- og áfengissölustaði sem og heildsölur. Þegar við framkvæmum þessar prófanir notum við ávallt ungt fólk sem er þó nógu gamalt til að kaupa áfengi og tóbak. Oftar en ekki lítur fólkið út fyrir að vera yngri en það er og því væri mjög eðlilegt að spyrja þau um skilríki sé lögunum framfylgt.
Hafið samband við okkur og fáið tilboð ásamt meðmælum sé þeirra óskað.